...

æ, þú veist

26.12.2009 22:23:01 / mary j

Vinátta


Vinur þinn er þér allt.
Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð
og gleði þín er uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur.
Þú kemur til hans svangur og í leit að friði.
Þegar vinur þinn talar, þá andmælir þú honum
óttalaust eða ert honum samþykkur af heilum hug.
Og þegar hann þegir, skiljið þið hvorn annan.
Því að í þögulli vináttu ykkar verða allar hugsanir,
allar langanir og allar vonir ykkar til
og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis.
Þú skalt ekki hryggjast , þegar þú skilur við vin þinn
því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans
getur orðið þér ljósara í fjarveru hans.
Eins og fjallgöngumaður sér fjallið best af sléttunni.
Og láttu vináttuna ekki eiga sér neinn
tilgang annan en að auðga anda þinn, því að sú vinátta
sem leitar einhvers annars en síns eigins leyndardóms
er ekki vinátta, heldur net, sem kastað er í vatn
og veiddir eru tómir undirmáls fiskar.
Gefðu vini þínum það, sem þú átt best.
Ef hann verður að þekkja fátækt þína, lát hann þá
einnig kynnast auðlegð þinni. Hví skyldir þú leita vinar
þíns aðeins til að drepa tímann? Leitaðu hans með
áhugamál þín, því að það er hans að uppfylla þörf þína
en ekki tómleika þinn. Vertu glaður með vini þínum
og njóttu með honum lífsins því í dögg lítilla hluta finnur
sálin morgun sinn og endurnærist.
                                                             - Úr Spámanninum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2009 13:02:45 / mary j

2008-2009.

Hæ þið..... nýtt ár.. ný byrjun hjá mér og vonandi spennandi tímar framundan hjá sem flestum. Ég þakka ykkur fyrir góðar stundir gamla árinu og vona að þær verði ennþá fleiri á þessu nýja.  

Smá öppdeit:

Ég er flutt til Reykjavíkur.
Ég bý með Óttu, Palla og Gumma.
Ég er byrjuð að vinna aftur á Múlaborg.
Ég er að fara að byrja í fjarnámi frá FÁ.
Ég er byrjuð í ræktinni aftur.
Ég þjáist af Facebook-fíkn - ábyggilega þú líka...

Reyndar veit ég ekki afhverju ég er að blogga, en fékk allt í einu einhverja löngun til þess...

Ég vildi að ég gæti sagt að ég saknaði ekki Akureyrar, en ég get það ekki.  Þetta eina og hálfa ár sem ég eyddi þarna var lengi að líða og mér leið ekkert alltaf vel.  En svo, þegar fór að líða að því að ég flytti aftur suður, þá langaði mig það eiginlega ekki... komin í góða rútínu, ræktin á hverjum degi, hitta vinkonurnar mínar, vinna yndislega vinnu með æðislegu fólki og ennþá æðislegri börnum.  Hlakkaði alltaf til að vakna á morgnana og hitta uppáhaldsfólkið. 

"Þetta verður betra" hugsa ég núna og læt mig hlakka til alls sem framundan er.  Að komast aftur í sömu góðu rútínuna:  vinna, líkamsrækt, hitta vini og gera eitthvað skemmtilegt.  En samt er ég farin að efast. 

Ég vona það besta og reyni mitt besta og brosi bara framan í allt þó mér finnist það leiðinlegt.... líka fólk. HAHAHA! Mér finnst jú gaman að brosa.

Þetta er alveg komið nógu gott í bili. Ekki búast við annarri færslu frá mér fyrr en svona sirka 2010....



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 01:00:48 / mary j

hot ashes for trees.

er byrjuð að vinna og líkar mjög vel.
eitt ár búið í háskólanum.
fluttum um síðustu helgi...
fórum líka vestur, það var frekar mikið ljúft..

annars já eins og ég segi.. það er ekki mikið að frétta, bara vinna, sofa og flytja - reyndar búin að vera heima veik síðan á þriðjudaginn.


bíladagar á næstu helgi, það verður ábyggilega eitthvað fjör....

æi fokkitt ég nenni þessu ekki.

c ya


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 13:36:35 / mary j

vinátta.

..og svo er vináttan skrítið tæki
að halda mætti að meðfram læki
ótrúnaður og slúður,
endalaust strit og klúður.

..forði mér því frá að á hana treysta,
frekar myndi ég treysta á neista.
hjartasár og tilfinningarúst?
færðu mér frekar kúst.

mamma er í útlöndum.
svona líður mér þessa dagana, en ekki út af henni samt.
svona er víst lífið - á Akureyri sem og annarsstaðar. en maður lifir.
best að hugsa ekki um það. það er hvort eð er sjálfkrafa.

annars er ekki baun í bala né dós að frétta..
prófin að byrja bráðlega og svo er sumarfrí.. vei!  vá hvað verður gott að komast í smá frí héðan.
er alveg komin með nóg í bili.

adios.

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 11:35:31 / mary j

Dagsins amstur....

Jæja, sæmilega væmið blogg þarna fyrir neðan svo það er kominn tími á nýtt.... svosem ekkert svakalega mikið að frétta reyndar en ætla að skrifa það helsta...

Ég er hætt við að flytja frá Akureyri.. áttaði mig nýlega á því að ég er ekki búin að gefa Akureyri sjálfa upp á bátinn - bara námið sem ég er í.  Ég er búin að kynnast svo ótrúlega mörgum og ótrúlega skemmtilegu fólki, gegnum skólann og aðra staði og það er eitthvað sem ég vil ekki flytja frá.  Ég er búin að eignast miklu fleiri nána vini hérna heldur en á þeim tíma sem ég bjó í Rvk...  Reyndar þurfum við Guðrún að finna okkur nýja íbúð fyrir sumarið og erum að vinna í því að leita að húsnæði..... 

Annars gengur lífið sinn vanagang þessa dagana; skóli, læra, hanga, sofa, sjónvarpsgláp, djamma, koma sér í vesen og já hafa gaman að þessu öllu saman.   Oooo það styttist svo í að skólinn klárist - seinna prófið er 5. maí og ég er að hugsa um að fara þá strax vestur og vera í viku og kíkka svo suður og vera þar í kannski nokkra daga eða viku eða eitthvað - fer eftir hvernig peningamál og annað verða þá.  En er allavega búin að lofa að að kíkka vestur og hitta Kolbrúnu og co :d

Ég á eftir að sækja um vinnu fyrir sumarið en það fer að líða að því... svo er ég að hugsa um að vinna næsta vetur en taka nokkra áfanga í VMA til að undirbúa námið í snyrtifræði... Það verður örugglega spes, en þetta eru einhverjir áfangar sem Guðrún tók í sjúkraliðanum svo ég dobla hana ábyggilega ef mig vantar aðstoð við eitthvað ;)  Hún er svo klár þessi elska.

Svo er það bara ræktin sem bíður manns.. hún er búin að þurfa að bíða eftir mér ansi lengi og ég held svei mér þá að ég eigi ekki eftir að heimsækja hana fyrr en ég er búin í skólanum - þangað til ætla ég bara að passa það sem ég set ofan í mig og svoleiðis :d

En nóg af rausi og ruglumsullbulli, ég er að skrifa ritgerð svo vi ses..
Endilega skiljið eftir smá kveðju svona ef einhver skyldi lesa þetta... Hilsen!


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 14:17:03 / mary j

stutt og laggott...

mér líður vel.

ég vona að þér líði þannig líka.

góð byrjun á deginum hjá mér...  ég vaknaði kl 7.00... anna ætlaði að koma að sækja mig en hún ákvað að lúlla sér lengur, ég ákvað að labba fyrst ég var nú hvort eð er komin á fætur... áttaði mig á því, mér til mikillar gremju, að báðir (JÁ BÁÐIR) ipodarnir mínir voru batteríslausir. lét mig hafa það og labbaði án tónlistarinnar minnar í þessum líka kulda.  sendi kristínu sms á leiðinni í skólann og spurði í hvaða stofu tíminn væri - ekkert svar.  ég labbaði svo inn í skólann og viti menn: tíminn féll niður. frábært.  ég fékk far með eydísi heim aftur.

ég ákvað, ótrúlegt en satt, að fara ekki að leggja mig aftur.  ég ákvað að vaska upp... svo ákvað ég að sópa... og ryksuga.. og ÞRÍFA. og mér líður vel. sé ekki eftir að hafa labbað í skólann :haha:

2 skóladagar eftir af vikunni. 4 tímar. vei.

guðrún á afmæli á morgun.

djamm om helga?
sjáum til ;)

vá hvað ég vildi að mér liði bara alltaf svona.  það er svo þægilegt og gott :d

hafðu það.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 12:24:56 / mary j

Believe.

Ég er í hádegishléi í skólanum.
Ég átti góða páska.
Ég elska fjölskylduna mína.
Ég elska vini mína.
Sérstaklega því ég er alltaf að komast betur og betur að því hverjir vinir mínir eru í raun.

Ég þoli ekki lygar.
Ekki heldur lygara.
Ég veit ekki hvað fólk fær út úr því að segja ekki sannleikann.
Sérstaklega þegar hann skiptir máli.
Og lýgur frekar.
Það er með verstu tilfinningum í heimi að komast að því að það sem maður hefur trúað er lygi.
Maður gæti allt eins rifið úr sér augun og stappað á þeim, því allt sem maður sá og trúði var í raun blekking.
Blekking sem maður getur ekki gert sér grein fyrir.
Sérstaklega þegar lygin kemur frá einhverjum sem er manni kær.
Það sökkar.

Ég er þreytt á skólanum.
Ég tóri þó.
Rétt rúmur mánuður eftir.
Ég verð ekki hér í sumar.
Ekki heldur næsta vetur.
Ég hlakka til sumarsins.
Það verður frábært, sama hvar ég verð.

Annars gengur lífið bara eins og vanalega.
Tíminn líður og ekkert breytist, nema allt.
Helgin fer í verkefnavinnu...
Ég ætla samt að reyna að koma öðru að líka.
Það er ekki á kristal.


Hafðu það gott - ég veit að ég mun reyna að gera það.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 21:02:43 / mary j

óþægilegt sæti.

Nú er ég í Reykjavík. 101 til að vera nákvæm.  Flaug hingað í dag og Iða kom og sótti mig á völlinn. Við fórum í Smáralindina og hittum Óttu og vorum nokk lengi þar að skoða og versla. Svo er ég hér...

Ég er ekki að fara að skemmta mér í kvöld, í þeim skilningi sem gildir í dag. 

Ég ætla að vera hérna, heima hjá sys. Iða er á afmælistónleikum Sálarinnar með vinkonum sínum.  Ég er að "passa". Samt ekki, er hjá strákunum.  Ég ætla að fara í heitt og gott bað á eftir, slappa af og hafa það náðugt.  Með sjálfri mér. 

Ég ætla að heimsækja Sirrýina mína á morgun og spjalla við hana um lífið og allt. Eins og okkur einum er lagið.  Mikil ósköp hvað ég á eftir að sakna þess mikið að geta ekki kíkt til hennar þegar ég er í Rvk.  En ég fer þá bara til hennar í kóngsins København.

Eftir að ég verð búin í heimsókninni hjá Sirrý þá ætlum við (ég, Iða og strákarnir) að fara austur fyrir fjall og vera þar yfir nótt, hjá Birnu sys. Vá hvað ég hlakka til.

Mig langaði bara aðeins að láta vita af mér.
Láttu vita af þér líka.

kv.

marymary.

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 16:46:34 / mary j

Vangaveltur gærdagsins. Og hins.

Ég er veik.
Ég er þreytt.
Ég er ónýt.
Ég er löt.
Ég er dofin.
Ég er með hálsbólgu, hósta og eyrnaverki. Og kvef.
Ég fer í páskafrí bráðum.
Ég er að drukkna í skólanum.
Ég hlakka til að hitta fjölskylduna mína.
Ég sakna þeirra allra.
Ég sakna samt líka Bíldudals og mig langar að vissu leyti að vera þar um páskana.
En fjölskyldan gengur fyrir.
Alltaf.
Ég hef það svoleiðis því ég vil það.

Ég þarf að gera verkefni í kvöld.
Ég gerði verkefni í síðustu viku.
Ég gerði verkefni í dag.
Ég geri verkefni á morgun.

Ég hlakka til að flytja út úr þessari íbúð.
Ég vil ekki búa í henni lengur.
Ég vil samt búa með Guðrúnu.
Ég veit ekki hvað ég á að gera í sumar.
Ég væri til í að vera á Akureyri.
Ég væri líka til í að vera fyrir vestan.
Ég væri líka til í að vera fyrir sunnan.
Ég þakka fyrir að mig langar ekki að vera fyrir austan því það væri of mikið.

Ég held ég sé orðin þreytt á lífinu.
Ég vil sofa endalaust.
Ég vil fá sumarið sem fyrst.
Sumarið og sólina.
Ég vil geta gengið úti á pilsi og hlírabol án þess að krókna.
Ég vil geta farið niður á Austurvöll og sest í grasið með ís eða bjór og sólað mig.

Ég vil samt líka búa hérna.
Ég vil geta farið vestur þegar mig langar.
Ég vil kaupa mér bíl.
Ég vil geta farið hvert sem ég vil, hvenær sem ég vil.
Ég vil fara til útlanda.
Ég vil fá góða vinnu í sumar.
Ég vil ekki þurfa að sakna neins.
Ég vil fá að vera hér, þar og allsstaðar.
Ég veit það er ekki hægt.
Svo ég er hér.

Ég er veik.
Ég er þreytt.
Ég er alltaf sofandi. Ef ekki sofandi, þá vakandi en samt sofandi.
Dofin. Yfirleitt alltaf. En ef ekki þá þreytt.

Ég sakna fjölskyldunnar.
Ég hlakka til að komast í langþráð páskafrí.
Ég verð fyrir sunnan.
Ég væri til í að vera hér líka. Sirrýin mín á afmæli á páskadag.
Ég væri líka til í að vera fyrir vestan. Kolbrún mín er þar.
Ég verð samt ánægð að vera með fjölskyldunni minni.
Ég vil það mest.

Ég fæ ekki allt sem ég vil fá.
Ég get ekki allt sem ég vil geta.
Ég má ekki allt sem ég vil mega.
Ég geri ekki allt sem ég vil gera.
Ég vildi það samt.


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 09:22:05 / mary j

dem

AAAAAA!!  
ég er að fara yfir um.
tú og rify!

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 14:02:30 / mary j

Vá...

Yo, yo, yo!

Mig langar bara að þakka öllum fyrir að comment-a á síðustu færslu, ég er ekkert smá ánægð með ykkur!!

Ætli bloggið mitt muni fjalla um mikið annað en ræktina, skólann og svoleiðis næstu nokkur blogg þar sem lífið mitt er í smá endurhönnun þessa dagana...

Ég, Kristín og Jóhanna fórum í gær og keyptum okkur 3 mánaða kort í Bjargi og ég fór á brettið í góðar 40 mínútur í gær. Svo er það Body Jam kl 17.30 í dag (sem eru svona dans-eróbikk tímar, geðveikt skemmtilegir). Við ætlum að vera duglegar að peppa hvora aðra upp og helst láta hvora aðra fá samviskubit ef við sleppum að mæta (sem gerist auðvitað aldrei hahaha ;) )

Það er vísindaferð til Reykjavíkur 31. janúar - 2. feb og auuuuðvitað ætla ég ekki að láta mig vanta!  Fæ að gista hjá Óttu skvísu og hún er meira að segja í fríi þá helgi svo það verður örugglega rosalega nice.....

En!!! Ég ætti að vera að gera allt annað núna en að blogga svo ég ætla að demba mér í þvottahúsið og lærdóminn!  

Verið í bandi fólk,

ciao! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 00:04:18 / mary j

...

Langar að vita hvað ykkur finnst um þessar: (Ef þær sjást.... er ekki beint snillingur í þessu)

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

 

Og þá... hver finnst ykkur flottust af þeim? Var aðeins að fikta.... látið nú heyra í ykkur fyrst það voru eeee fleiri en 30 heimsóknir á síðasta sólarhring - ef þetta heldur áfram og ekki nema svo fáir skrifa skoðanir þá læsir María blogginu sínu.... svo látið í ykkur heyra svo ég fari ekki að grenja!

hehe... cya

og by the way taktu þátt í skoðanakönnuninni!


» 17 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 01:06:18 / mary j

...

Það er naumast.

 

Ég nenni engu.

Ég er þreytt á þessu nennuleysi.

Ég er ennþá á Bíldudal - sem betur fer en samt því miður. 

Á morgun er það Rvk.

Á laugardaginn er það Ak.

Ég hlakka til en þó ekki.

Ég týndi myndavélinni minni um 22. desember. 

Ég hafði hugsað mér að halda áfram í skólanum á næstu önn.

Ég trúi því miður samt að ég geri það ekki.

Mér leiðist þetta.

Þetta blogg er svo hræðilega tilgangslaust að ég trúi því ekki að þú sért ennþá að lesa það.

Ég er svartsýn á allt.

Ég er búin að falla oft í fríinu, það er ömurlegt.

Ég er krambúleruð á öxlinni og hnénu eftir síðasta fall. 

Ég er kannski bara svona ýkt-óheppin.

Mig langar ekki aftur norður.

Ég vil vera hérna, hjúfra mig undir sænginni minni og liggja úti í horni.

Ég vil sofa.

Ég get það bara ekki. 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 17:47:24 / mary j

jóla jóla jóla..

Aðfangadagur, 24. desember 2007.   Vá hvað tíminn líður hratt. 

 

GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR! 

 

Takk fyrir allt það gamla og góða.  Þið gerið heiminn að betri stað til að vera á.

Ég vona að allir sem ég þekki (og þeir sem ég þekki ekki) eigi góð og gæfurík jól og njóti þeirra með fjölskyldu/vinum. 

Jóla-kveðja úr Arnarhóli - María Jóns

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 11:01:38 / mary j

Desember að ganga í garð

Bara smá öppdeit.

 

Jæja þá fer að koma að því að ég geti LOKSINS farið frá Akureyri. Ég verð að viðurkenna að þó ég eigi nú eftir að sakna Kristínar og Eydísar og Óla og Kjartans og fleiri þá get ég ekki beðið eftir að komast héðan.

Stefnan er sett á Rvk á fimmtudaginn næsta og þá beint að hitta systumínurnar en síðan bara beint í sveitina til Birnu og ætla að vera þar nokkra daga.  Svo ætla ég að fara aftur í bæinn og vera nokkra daga ef ég næ að fá gistingu einhversstaðar... svo verður farið vestur ca 15.-16. des vonandi..

Ég er orðin hræðilega þreytt á að vera hérna og veit ekki hvort ég haldi áfram í skólanum eða ekki.. Ég er alltaf ein heima en það er ekkert hægt að gera í því, það er greinilega bara ekki gott að vera hérna heima hjá mér.  Ég held að Guðrún sé á leiðinni að flytja í skólann, ræktina eða heim til Önnu K. Held ég ætti bara að flytja suður aftur. Pæli í þessu.. a

Annars verður mikið að gera í jólafríinu.. auðvitað nokkur afmæli eins og alltaf en svo er líka skírn og brúðkaup hjá Kolbrúnu og Ninna! Ég get ekki beðið, það verður geggjað =)

Ohh er farin að gera mig til fyrir matarboðið hjá Kristínu í hádeginu... svo er það bara lærdómur alla helgina, aldrei þessu vant.. Fer í próf í hugmyndasögu á mánudaginn og svo íslenskupróf á miðvikudaginn.  Æ ég veit reyndar ekki afhverju ég er að skrifa hérna inn.

BLEH kjaftæði.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 268 dögum
BGB
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 15907
Könnun
Hvað ert þú